Prófkjör Sjálfstæðisflokksins á Akranesi
Tíu frambjóðendur hafa gefið kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Akranesi, sem fram fer laugardaginn 27. febrúar n.k. Frambjóðendur eru eftirfarandi:
|
Í prófkjörinu skal kjósa 6 frambjóðendur, hvorki fleiri né færri. Þátttaka í prófkjörinu er heimil öllum fullgildum meðlimum sjálfstæðisfélaganna á Akranesi sem þar eru búsettir. Einnig er þátttaka heimil stuðningsmönnum Sjálfstæðisflokksins, sem eiga munu kosningarrétt á Akranesi í sveitarstjórnarkosningunum í vor og undirritað hafa inntökubeiðni í sjálfstæðisfélag á Akranesi fyrir lok prófkjörfundar.
Frá og með 16. febrúar verður hægt að kjósa utan kjörfundar í Valhöll, skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, alla virka daga milli 9 og 17. Nánari upplýsingar veitir Bergþór Ólason, formaður kjörnefndar, í síma 860-9007 eða á bergthor@loftorka.is.