Akureyri

Ákveðið hefur verið að halda prófkjör til þess að ákveðið hvernig raðað verður á lista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri fyrir sveitastjórnarkosningarnar 2010. Prófkjörið fer fram í Oddeyrarskóla 13. febrúar nk.

Þátttaka í prófkjörinu er heimil

  • Öllum fullgildum meðlimum sjálfstæðisfélaganna í sveitarfélaginu sem þar eru búsettir.
  • Þeim stuðningsmönnum Sjálfstæðisflokksins, sem eiga munu kosningarrétt í sveitarfélaginu við kosningarnar og undirritað hafa inntökubeiðni í sjálfstæðisfélag í sveitarfélaginu fyrir lok kjörfundar.

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla: 1.–12. febrúar

Akureyri: Skrifstofa Sjálfstæðisflokksins í Kaupangi v/Mýrarveg, virka daga kl. 16–18 og laugardaginn 6. febrúar kl. 9–13.

Reykjavík: Skrifstofa Sjálfstæðisflokksins í Valhöll, virka daga kl. 9–17.

Grímsey: Félagsheimilið, 11. febrúar kl. 14–18.

Athugið að aðeins er kosið utankjörfundar í Grímsey. Enginn kjörfundur verður í Grímsey á prófkjörsdaginn.