Kópavogur
Prófkjörið fer fram laugardaginn 20. febrúar 2010. Kosið verður í félagsheimili Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi að Hlíðarsmára 19. Kjörfundur hefst kl. 10.00 og lýkur kl. 18.00.
Fyrstu tölur verða birtar kl. 19.00 og er öllu sjálfstæðisfólki heimilt að mæta í Hlíðasmára 19 og fylgjast með talningu og stöðu frambjóðenda.
Kosningarétt í prófkjörinu hafa: 1. Allir fullgildir meðlimir sjálfstæðisfélaganna í Kópavogi sem eru þar búsettir. 2. Þeir stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins sem eiga munu kosningarétt í Kópavogi við sveitastjórnarkosningar 2010 og undirritað hafa inntökubeiðni í sjálfstæðisfélag í Kópavogi fyrir lok kjörfundar.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst 1. febrúar 2010 og fer fram í Valhöll, Háaleitisbraut 1, kl. 9.00 - 17.00 alla virka daga fram að prófkjöri. Kjörskrá liggur frammi alla laugardaga fram að prófkjöri frá 10-12 í Hlíðasmára 19.
Nánari upplýsingar gefur formaður kjörnefndar, Óttar Felix Hauksson, í síma 897-0057 eða Ásta Þórarinsdóttir í síma 770-2226.